Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði átta mörk þegar lið hans, FC Porto, gerði jafntefli við Benfica, 29:29, í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld. Leikið var í Lissabon. Porto var marki yfir í hálfleik, 15:14. Þorsteinn Leó var markahæstur leikmanna Porto.
Stiven Tobar Valencia skoraði tvö mörk fyrir Benfica og var einu sinni vikið af leikvelli í tvær mínútur. Gustavo Capdeville markvörður Benfica átti framúrskarandi leik og varði 16 skot.
Benfica er í öðru sæti deildarinnar með 57 stig, sex stigum á eftir Sporting Lissabon. FC Porto er með 53 stig en hefur leikið tveimur leikjum færra en Benfica. Til stendur að frestuð viðureign FC Porto og Maritimo fari fram næsta laugardag.
Costa-bræður óstöðvandi í enn einum sigrinum



