- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Mæta Svartfellingum í Podgorica síðdegis

- Auglýsing -

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna mætir svartfellska landsliðinu öðru sinni í undankeppni Evrópumótsins í dag í Bemax Arena í Podgoria, höfuðborg Svartfjallalands. Flautað verður til leiks klukkan 17. Viðureignin er ein af átta í undankeppninni í dag.


Landsliðið hefur verið í Svartfjallalandi síðan á fimmtudag við undirbúning fyrir síðari viðureignina. Íslenska landsliðið vann fyrri leikinn á eftirminnilegan hátt á Ásvöllum á fimmtudagskvöld, 28:27, og hreppti þar með fyrstu stigin í fjórða riðli undankeppninnar.

Díana er mætt til leiks

Díana Dögg Magnúsdóttir leikmaður Blomberg-Lippe kom til móts við íslenska landsliðið á föstudagskvöld. Hún gat ekki tekið þátt í fyrri viðureigninni á miðvikudaginn vegna prófs í flugvélaverkfræði.

Fyrsti landsleikur Ethelar

Ethel Gyða Bjaransen markvörður Fram leikur sinn fyrsta A-landsleik í dag. Hún var kölluð inn í hópinn í stað Hafdísar Renötudóttur markvarðar Vals sem fékk högg á höfuðið í leiknum við Svartfellinga á miðvikudagskvöld. Katrín Tinna Jensdóttir varð einnig fyrir höfuðhöggi í leiknum en fór ekki með til Svartfjallalands.

Arnar Pétursson landsliðsþjálfari, Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Sonja Lind Sigsteinsdóttir og Sara Dögg Hjaltadóttir landsliðskonur. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Eftir því sem næst verður komist hefur undirbúningur íslenska landsliðsins fyrir leikinn í dag gengið að óskum. Öllum er ljóst að um erfiðan leik verður að ræða á útivelli gegn sterku liði Svartfellinga. Leikmenn íslenska landsliðsins hafa aftur á móti sýnt að þeir herðast við hverja raun.

Viðureign Svartfjallalands og Íslands verður send út beint á RÚV. Einnig verður textalýsingu að finna á handbolti.is.


Á sama tíma og landslið Svartfjallalands og Íslands eigast við í Podgorica mætast landslið Færeyja og Portúgals í Senhora da Hora í Matosinhos, í úthverfi Porto. Færeyingar og Portúgalar eru með í sama riðli undankeppninnar. Færeyingar unnu fyrri leikinn í Þórshöfn á miðvikudagskvöld, 25:21.

Staðan í 4. riðli:

Sv.fjallaland320188:764
Færeyjar320175:754
Portúgal310269:792
Ísland310275:772

Tveir EM farseðlar í gær

Svíþjóð og Spánn tryggðu sér farseðla á EM í gær er lið þjóðanna unnu viðureignir sínar í fimmta og sjötta riðli undankeppninnar. Frakkland, Holland og Þýskaland geta bæst í hóp farseðilshafa í dag.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -