Sænski handboltaþjálfarinn Andreas Stockenberg, sem ýfði hár margra Íslendinga meðan á Evrópumótinu í handknattleik stóð yfir í janúar, hefur ákveðið að hætta þjálfun í vor og segja skilið við handknattleik, alltént um stundarsakir. Stockenberg hefur unnið við þjálfun í nærri 30 ár og þykir einn litríkasti þjálfarinn í Svíþjóð enda óspar á að tala tæpitungulaust um fleiri en íslenska landsliðið.
Stundin er runnin upp
„Það er víst kominn tími til að gera eitthvað. Ég lofaði sjálfum mér fyrir nokkrum árum að þegar ég fyndi fyrir að ég brynni ekki lengur fyrir þjálfun væri rétt að láta staðarnumið. Nú er stundin runninn upp,“ segir Stockenberg við Handbollskanalen.
Alltof miklar kröfur
„Áður fyrr dugði að vera þjálfari en í dag er ætlast til þess að maður sé allt. Maður á að vera sálfræðingur, maður á að eiga við foreldra, maður á að vera góður þjálfari og sjá um einstaklingsmiðaðar þróunaráætlanir fyrir hvern leikmann. Kröfurnar eru endalausar og það tekur á kraftana,“ segir Stockenberg enn fremur.
Fékk það óþvegið frá Íslendingum
Stockenberg varð það meðan EM karla stóð yfir í janúar að gagnrýna íslenska landsliðið eftir tap þess fyrir Króötum í milliriðlakeppninni. Fékk hann að heyra það óþvegið í holskeflu tæpitungulausra skilaboða frá Íslendingum. Fyrir vikið steig Stockenberg krappan dans, ekki síst eftir sigur íslenska landsliðsins á Svíþjóð tveimur dögum eftir tapið fyrir Króötum. Sagðist hann hafa numið þá reynslu að ekki borgaði sig að stríða heilli þjóð.



