Íslenska landsliðið tapaði með níu marka mun, 33:24, fyrir Svartfellingum í síðari viðureign þjóðanna í undankeppni EM kvenna í handknattleik í Podgorica í kvöld. Tuttugu síðustu mínútur leiksins voru martröð hjá íslenska liðsins. Rúmlega 12 mínútur án marks kippti botninum úr vænlegri stöðu. Svartfellingar skoruðu níu mörk í röð og lögðu grunn að sigrinum.
Staðan var jöfn í hálfleik, 13:13. Að loknum 40 mínútum var íslenska liðið yfir, 20:18. Þá hljóp allt í baklás í sókninni og Svartfellingar gengu á lagið.
Framúrskarandi frammistaða íslenska landsliðsins í 40 mínútur hvarf því miður í skuggann af síðasta þriðjungnum.
Á sama tíma unnu Portúgalar lið Færeyinga, 25:23, í Portúgal. Íslenska liðið er þar með áfram neðst í riðlinum með tvö stig eftir fjóra leiki en Svartfellingareru efstir með sex stig. Færeyingar og Portúgalar hafa fjögur stig hver.
Öll nótt um keppnisrétt á EM er alls ekki úti hjá íslenska landsliðinu. Enn eru eftir tveir leikir, við Færeyinga ytra 8. apríl og heimaleikur gegn Portúgal 12. apríl. Með sigri í þeim, jafnvel öðru, verða möguleikarnir áfram opnir.
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja
Mörk Íslands: Elín Klara Þorkelsdóttir 7/1, Katrín Anna Ásmundsdóttir 6, Dana Björg Guðmundsdóttir 3, Díana Dögg Magnúsdóttir 2, Lovísa Thompson 2, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 2, Elísa Elíasdóttir 1, Sandra Erlingsdóttir 1/1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 12, 27,9% – Ethel Gyða Bjarnasen 1/1, 33,3%.
Mörk Svartfjallalands: Djurdjina Jaukovic 12, Matea Pletikosic 5, Dijana Trivic 4, Tatjana Brnovic 4, Itana Grbic 3, Nina Bulatovic 2, Anastasija Marsenic 1, Mina Novovic 1, Martina Knezevic 1.
Varin skot: Armelle Attingré 8, 28,5% – Marija Marsenic 1, 20%.
Handbolti.is fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.




