- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Myndskeið: Viggó skoraði 16 mörk, Ómar 12 og Haukur 10

- Auglýsing -

Íslenskir handknattleiksmenn voru í miklum ham með félagsliðum sínum í þýska handboltanum í dag. Þrír þeirra skoruðu samanlagt 38 mörk fyrir félagslið sín. Ákafastur þeirra var Viggó Kristjánsson sem skoraði 16 mörk í 19 skotum þegar HC Erlangen vann GWD Minden, 36:31, á heimavelli. Ómar Ingi Magnússon skoraði 12 mörk fyrir Magdeburg í fimm marka sigri á Hannover-Burgdorf. Haukur Þrastarson skoraði 10 mörk er Rhein-Neckar Löwen lagði Bergischer, 28:25. Þar að auki gaf Haukur fimm stoðsendingar og geigaði aðeins á þremur skotum.

Þrjú af 16 úr vítaköstum

Viggó skoraði þrjú marka sinna af 16 úr vítaköstum og gaf þar að auki fjórar stoðsendingar í sigrinum nauðsynlega hjá HC Erlangen á GWD Minden í PSD Bank Nürnberg. Andri Már Rúnarsson skoraði ekki að þessu sinni. Hann lét Viggó alveg eiga sviðið. Viggó skoraði 10 af 16 mörkum HC Erlangen í fyrri hálfleik.

12 mörk í uppstilltum leik

Ómar Ingi skoraði öll 12 mörk sín í uppstilltum leik. Hann tók eitt vítakast og brást þá bogalistin. Var það eina markskot Ómars Inga sem missti marks. Hann gaf þrjár stoðsendingar. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fimm mörk og gaf sjö stoðsendingar.

Elvar Örn með á ný

Elvar Örn Jónsson var í leikmannahópi SC Magdeburg í fyrsta sinn á árinu. Hann hefur þar með jafnað sig eftir handarbaksbrot í viðureign Íslands og Ungverjalands á EM 20. janúar. Það eru sannarlega gleðitíðindi.

August Pedersen skoraði átta mörk fyrir Hannover-Burgdorf hvar Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari.

Haukur nýtti færin

Haukur skoraði sjö af tíu mörkum sínum úr vítaköstum en hann virðist vera orðinn helsta vítaskytta Rhein-Neckar Löwen auk þess að vera einn hættulegasti sóknarmaður liðsins og stoðsendingakóngur þýsku 1. deildarinnar. Línumaðurinn Jannik Kohlbacher skoraði sjö mörk og naut þess sem fyrr að leika með Hauki.

Noah Beyer var markahæstur hjá Bergischer sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar við annan mann.

Arnar og Reynir unnu í Wetzlar

Arnar Freyr Arnarsson skoraði þrjú mörk og Reynir Þór Stefánsson eitt þegar MT Melsungen jók á raunir HSG Wetzlar með sigri, 38:32, á heimavelli Wetzlar. Rúnar Sigtryggsson er þjálfari Wetzlar sem situr í næst neðsta sæti sem fyrr.


Staðan:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -