Afar góður leikur Elmars Erlingssonar með HSG Nordhorn-Lingen í dag nægði ekki til þess að liðið næði að leggja Balingen-Weilstetten á heimavelli í þýsku 2. deildinni í handknattleik. Balingen-menn unnu með fjögurra marka mun, 37:33, og halda áfram kapphlaupinu við Bietigheim og Elbflorenz um efstu tvö sæti deildarinnar. Nordhorn-Lingen er í hópi þeirra liða sem koma þar á eftir.
Elmar skoraði fimm mörk í sex skotum og gaf sjö stoðsendingar. Tarek Marschall, samherji Elmars, skoraði 11 mörk en þurfti til þess 17 markskot.
Sascha Pfattheicher skoraði einnig 11 mörk fyrir Balingen-Weilstetten.
Fall blasir við
Tjörvi Týr Gíslason skoraði eitt mark fyrir heillum horfið lið HC Oppenweiler/Backnang er það tapaði á heimavelli fyrir Bayer Dormgaen, 49:31.
Ekkert annað en fall eftir eins árs dvöl í 2. deild virðist bíða HC Oppenweiler/Backnang. Liðið er með 2 stig eftir 23 leiki og er 10 stigum á eftir Krefeld sem er næst fyrir ofan.
Staðan:




