- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Þrjár breytingar á EM-hópnum fyrir Svíaleikina

- Auglýsing -

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik hefur valið landsliðshópinn sem hann teflir fram í tveimur vináttuleikjum við Svía hér á landi 19. og 21. mars í N1-höllinni á Hlíðarenda og í Kaplakrika. Andri Már Rúnarsson, Bjarki Már Elísson og Ómar Ingi Magnússon taka ekki þátt í leikjunum af þeim leikmönnum sem tóku þátt í EM í janúar. Bjarki er meiddur og Ómar Ingi og kona hans eiga von á barni á næstu dögum. Snorri Steinn sagði á blaðamannafundi í hádeginu að hann hafi kosið að velja Reyni Þór að þessu sinni í stað Andra Más.


Ísak Steinsson markvörður Drammen bætist í hópinn auk Reynis Þórs sem áður er getið og Stivens Tobars Valencia hornamanns Benfica sem tekur sæti Bjarka Más. Eins er Sigvaldi Björn Guðjónsson í hópnum að þessu sinni. Hann bættist við EM-hópinn degi fyrir síðasta leikinn á EM.

Hópurinn sem mætir Svíum 19. og 21. mars er skipaður eftirtöldum leikmönnum.


Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (296/26).
Ísak Steinsson, Drammen HK (3/0).
Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (83/2).
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (116/121).
Einar Þorsteinn Ólafsson, HSV Hamburg (34/8).
Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (73/170).
Elvar Örn Jónsson, SC Magdeburg (96/217).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (84/205).
Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (56/78).
Janus Daði Smárason, Pick Szeged (109/206).
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (41/142).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (67/213).
Reynir Þór Stefánsson, MT Melsungen (1/2).
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (86/230).
Stiven Tobar Valencia, Benfica (22/27).
Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (56/48).
Viggó Kristjánsson, HC Erlangen (82/248).
Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (117/48).
Þorsteinn Leó Gunnarsson, FC Porto (25/39).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -