„Ég tek með mér úr þessum tveimur leikjum við Svartfellinga 100 mjög góðar mínútur af 120. Ég held að það sé enginn vafi á að við vorum að stíga framfaraskref þegar á heildina er litið,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik þegar handbolti.is heyrði í honum í morgun. Arnar var staddur á alþjóðaflugvellinum í Istanbúl á leið heim til Íslands eftir viðureign við Svartfellinga í undankeppni Evrópumótsins.
Eins og kom fram í fréttum í gær tapaði íslenska liðið með níu marka mun, 33:24, eftir að hafa verið yfir að loknum 40 mínútum, 20:18. Íslenska landsliðið vann fyrri viðureignina gegn toppliði riðilsins, 28:27, á Ásvöllum á miðvikudagskvöld.

Næstu leikir mikilvægir
Ísland situr áfram í neðsta sæti af fjórum liðum í fjórða riðli undankeppni EM með tvö stig fyrir tvo síðustu leikina, ytra gegn Færeyingum 8. apríl og heima við Portúgal 12. apríl. Vonin um sæti í lokakeppni EM er áfram fyrir hendi.
„Við lékum mjög vel í fjörutíu mínútur gegn mjög góðu liði á erfiðum útivelli. Þótt það hafi ekki sést vel í sjónvarpinu þá var vel mætt og stemningin fín. Síðan verða kaflaskil og síðustu tuttugu mínúturnar voru mjög slæmar og eitthvað sem við skoðum vel,“ sagði Arnar en samkvæmt upplýsingum þá voru nærri 1.200 áhorfendur á viðureigninni í Bemax Arena í Podgorica.
Meðalaldur um 23 ár
„Ég horfi á það hvort við séum að taka framförum eða ekki og við vorum klárlega að stíga skref til framfara í báðum leikjum við Svartfellinga,“ segir Arnar og undirstrikar að reyndir leikmenn hafi verið fjarverandi í báðum leikjum. Yngri leikmenn og lítt reyndari hafi tekið við keflinu og aðrir lagað sig að aðstæðum og leyst sín hlutverk mjög vel. Meðalaldur hópsins sé í kringum 23 ár og aðeins fjórar af 16 leikmönnum teljast atvinnukonur í handbolta.
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja
Skilar sér í reynslu
„Ég er viss um að reynslan sem stelpurnar öfluðu sér í síðustu leikjum á eftir að nýtast þeim í náinni framtíð. Ég vænti þess að hópurinn sem skipar landsliðið núna eigi eftir að vera saman í nokkuð mörg ár. Það er svekkelsi í hópnum að hafa ekki náð betri úrslitum vegna þess að við finnum að við erum að nálgast liðin fyrir ofan okkur. Enn eru nokkur atriði sem við verðum að vinna í til þess að nálgast enn meira,“ sagði Arnar.

Markmiðið er óbreytt
Arnar segir að markmiðið sé að komast inn á Evrópumótið sem fram fer í fimm Evrópulöndum í desember. Tveir síðustu leikirnir munu skipta miklu máli í því sambandi. „Við fórum vel yfir það í gærkvöld að næsti mánuður skipti okkur öll miklu máli.
Við komum jákvæð út úr þessari viku samveru okkar sem hópur og hlökkum til að koma saman á ný eftir mánuð og takast á við þau verkefni sem bíða okkar. Ég er stoltur eftir þessa viku og því sem stelpurnar náðu,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik.



