- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Enginn verður í leikbanni í lokaumferð Olísdeildar

- Auglýsing -

Enginn þeirra þriggja leikmanna sem lentu inni á borði aganefndar HSÍ vegna útilokana frá leikjum Olísdeildar karla í 20. og 21. umferð voru úrskurðaðir í leikbann á fundi aganefndar fyrr í dag. Þeir geta andað léttar yfir að verða gjaldgengir í lokaumferð Olísdeildar á fimmtudaginn.


Um er að ræða Brynjar Hólm Grétarsson, leikmann Þórs, Jökul Blöndal Björnsson, leikmann ÍR, og Tandra Má Konráðsson, leikmann Stjörnunnar. Tveir þeirra síðarnefndu voru útilokaðir frá viðureign ÍR og Stjörnunnar í 21. umferð Olísdeildar í gærkvöld þegar mættust stálin stinn í slag botnliðanna.

Brynjar Hólm var útilokaður er hann braut af sér í viðureign Þórs og Hauka í 20. umferð á miðvikudaginn í síðustu viku. Víst er að mikill léttir er í herbúðum Þórs vegna stórleiksins við KA í Íþróttahöllinni á Akureyri á fimmtudagskvöld í síðustu umferð Olísdeildar karla. Brynjar Hólm leikur stórt hlutverk hjá Þór og skoraði m.a. átta mörk og átti tvær stoðsendingar í sigri Þórsara á Aftureldingu að Varmá, 26:24, í gærkvöld.

Skulu gæta sín

Aganefnd minnir þremenningana á að halda sig á mottunni vegna stighækkandi áhrifa útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.

Nánari upplýsingar: Aganefnd HSÍ | Úrskurður 10.03.’26

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -