Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen eru úr keppni í Evrópudeildinni í handknattleik karla. Þeir töpuðu fyrir Fredericia HK, 30:29, á heimavelli í fjórðu og síðustu umferð riðlakeppninnar í kvöld. Kadetten rak lestina af fjórum liðum deildarinnar. Óðinn Þór var markahæstur hjá Kadetten með átta mörk.
Fredericia heldur áfram keppni í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar ásamt RK Nexe sem vann Hannover-Burgdorf, 26:23, á heimavelli. Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari þýska liðsins sem vann riðilinn og fer beint í átta liða úrslit og situr þar með yfir í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar sem liðin sem hafna í öðru og þriðja sæti hvers riðils taka þátt í.
Tryggvi og samherjar beint í 8-liða úrslit
Tryggvi Þórisson og samherjar í norska meistaraliðinu Elverum unnu Granollers, 29:27, í riðli 2 og kræktu þar með í efsta sætið og fara beint í 8-liða úrslit. Tryggvi skoraði eitt mark. Granollers var neðst og er þar með úr leik.
Þorsteinn Leó Gunnarsson var í leikmannahópi FC Porto sem lagði danska úrvalsdeildarliðið Skanderborg AGF í Árósum í kvöld með eins marks mun, 30:29. Þorsteinn sparaði púðrið og skoraði ekki mark í kvöld.
Sigurinn tryggði Porto annað sæti riðilsins en Skanderborg hreppti þriðja sætið.
Kristján Örn skoraði þrjú mörk fyrir Skanderborg í sínum fyrsta Evrópuleik með liðinu eftir að hafa náð sér góðum eftir kviðslitsaðgerð.
Leikir útsláttarkeppni Evrópudeildar karla:
Skanderborg – Flensburg.
Montpellier – Porto.
Fredericia – Melsungen.
Kristianstad – RK Nexe.
- Leikirnir fara fram 31. mars og 7. apríl.
- Sigurliðin komast í átta liða úrslit.
- THW Kiel, Elverum, Vardar og Hannover-Burgdorf fara beint í átta liða úrslit.




