Ísak Steinsson landsliðsmarkvörður og liðsfélagar hans í Drammen HK töpuðu fyrir Bergen Håndball, 36:31, á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í gær. Ísak varði fimm skot, þar af eitt vítakast, og var með 15% hlutfallsmarkvörslu þann tíma sem hann stóð í marki Drammen. Reyndar er óvíst hvort tölfræði sé rétt en pottur hefur verið brotinn í tölfræði nokkurra leikja tímabilsins í deildinni.
Ungt lið Drammen er í 5. sæti deildarinnar en Bergen í þriðja sæti.
Nýliðum Sandefjord hefur vaxið fiskur um hrygg eftir því sem liðið hefur á leiktíðina í norsku úrvalsdeildinni. Í kvöld vann Sandefjord grannaslaginn við Runar, 30:26, og er komið í 7. sæti deildarinnar.
Phil Döhler, fyrrverandi markvörður FH, átti stórleik í marki Sandefjord þá stuttu stund sem hann stóð í markinu. Döhler varði 10 skot, 63%.
Staðan:



