HK komst að minnsta kosti um stundarsakir í efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í handknattleik eftir að hafa lagt Val 2, 31:24, í upphafsleik 19. umferðar sem fram fór í Kórnum í kvöld. Keppinautur HK um efsta sæti deildarinnar, Grótta, mætir FH á föstudagskvöld og endurheimtir efsta sætið með sigri í viðureigninni.
HK var þremur mörkum yfir í hálfleik, 15:12. Síðari hálfleikur var jafnari og meira spennandi en lokatölurnar gefa til kynna því aðeins var eins marks munur á liðunum þegar 12 mínútur voru eftir af leiktímanum, 22:21. Góður kafli HK-liðsins á síðustu mínútum, þegar liðið breytti stöðunni úr 25:23 í 30:23, gerði út um viðureignina.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.
Mörk HK: Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 8, Tinna Óska Gunnarsdóttir 8, Amelía Laufey G. Miljevic 4, Inga Fanney Hauksdóttir 3, Sóley Ívarsdóttir 2, Þórhildur Braga Þórðardóttir 2, Katrín Hekla Magnúsdóttir 1, Leandra Náttsól Salvamoser 1, Margrét Guðmundsdóttir 1, Selma Sól Ómarsdóttir 1.
Varin skot: Danijela Sara B. Björnsdóttir 14.
Mörk Vals: Laufey Helga Óskarsdóttir 10, Guðrún Hekla Traustadóttir 4, Embla Heiðarsdóttir 3, Katla Margrét Óskarsdóttir 3, Lena Líf Orradóttir 2, Lilja Ágústsdóttir 1, Sigrún Erla Þórarinsdóttir 1.
Varin skot: Elísabet Millý Elíasardóttir 9.



