Tvö efstu lið Grill 66-deildar karla í handknattleik, Víkingur og Grótta, unnu viðureignir sínar í kvöld í næstsíðustu umferð deildarinnar. Þau eru þar með áfram jöfn að stigum í tveimur efstu sætum deildarinnar, hafa 38 stig hvort. Víkingur stendur betur að vígi lítið til innbyrðis leikja liðanna og á efsta sætið víst með sigri á Haukum 2 í síðustu umferð á laugardaginn á Ásvöllum.
Gróttu mun ekki nægja að leggja Fram á heimavelli á laugardaginn til þess að hreppa efsta sætið ef Víkingar vinna sína viðureign.
Liðið sem verður efst þegar upp verður staðið fer rakleitt upp í Olísdeild á næstu leiktíð. Liðið sem hafnar í öðru sæti fer í umspil um sæti í Olísdeildinni þar sem sannarlega verður ekki á vísan róið.
Víkingur vann stórsigur á Hvíta riddaranum, 39:23, í Virkinu í kvöld. Grótta lagði ÍH í Kaplakrika, 41:32.
Harðaringar unnu Fjölni í hörkuleik í íþróttahúsinu á Torfnesi, 29:29. Ísfirðingar skoruðu þrjú af síðustu fimm mörkum leiksins.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.
Hörður – Fjölnir 29:28 (15:17).
Mörk Harðar: Jose Esteves Lopes Neto 9, Shuto Takenaka 8, Kei Anegayama 4, Guilherme Carmignoli De Andrade 3, Axel Vilji Bragason 2, Pétur Þór Jónsson 1, Yuji Moriya 1, Petr Hlavenka 1.
Varin skot: Stefán Freyr Jónsson 12.
Mörk Fjölnis: Brynjar Óli Kristjánsson 6, Óli Fannar Pedersen 6, Þorleifur Rafn Aðalsteinsson 6, Victor Máni Matthíasson 4, Guðjón Snær Traustason 2, Viktor Berg Grétarsson 2, Alex Máni Oddnýjarson 1, Ari Magnússon 1.
Varin skot: Bergur Bjartmarsson 6, Pétur Þór Óskarsson 3.
Víkingur – Hvíti riddarinn 39:23 (20:9).
Mörk Víkings: Þorfinnur Máni Björnsson 7, Jóhann Reynir Gunnlaugsson 6, Ásgeir Snær Vignisson 5, Felix Már Kjartansson 4, Rytis Kazakevicius 4, Sigurður Páll Matthíasson 4, Halldór Ingi Óskarsson 3, Kristján Helgi Tómasson 2, Arnar Már Ásmundsson 1, Ísak Óli Eggertsson 1, Páll Þór Kolbeins 1, Stefán Scheving Th. Guðmundsson 1.
Varin skot: Rökkvi Pacheco Steinunnarson 6, Daði Bergmann Gunnarsson 4, Stefán Huldar Stefánsson 1.
Mörk Hvíta riddarans: Gísli Rúnar Jóhannsson 9, Adam Ingi Sigurðsson 4, Haukur Guðmundsson 4, Brynjar Búi Davíðsson 2, Magnús Kári Magnússon 2, Bergvin Snær Alexandersson 1, Andri Freyr Friðriksson 1.
Varin skot: Sölvi Þór Daníelsson 3, Bergvin Snær Alexandersson 1.
ÍH – Grótta 32:41 (16:23).
Mörk ÍH: Benedikt Elvar Skarphéðinsson 9, Brynjar Narfi Arndal 5, Hákon Ingi Garðarsson 5, Daníel Breki Þorsteinsson 3, Róbert Dagur Davíðsson 3, Þórarinn Þórarinsson 3, Axel Þór Sigurþórsson 1, Ernir Guðmundsson 1, Sigfús Hrafn Þormar 1, Veigar Snær Sigurðsson 1.
Varin skot: Kristján Rafn Oddsson 16.
Mörk Gróttu: Atli Steinn Arnarson 8, Sæþór Atlason 6, Ari Pétur Eiríksson 5, Antoine Óskar Pantano 4, Gísli Örn Alfreðsson 4, Kári Kvaran 4, Gunnar Hrafn Pálsson 3, Tómas Bragi Lorriaux Starrason 3, Alex Kári Þórhallsson 2, Bessi Teitsson 2.
Varin skot: Hannes Pétur Hauksson 11.
Selfoss 2 – Haukar 2 35:35 (19:19).
Mörk Selfoss: Ragnar Hilmarsson 10, Aron Leo Guðmundsson 7, Bartosz Galeski 5, Dagbjartur Máni Björnsson 4, Dagur Rafn Gíslason 3, Bjarni Valur Bjarnason 2, Skarphéðinn Steinn Sveinsson 2, Garðar Freyr Bergsson 1, Jón Þórarinn Hreiðarsson 1.
Varin skot: Garðar Freyr Bergsson 13.
Mörk Hauka: Jón Karl Einarsson 10, Daníel Wale Adeleye 9, Daníel Máni Sigurgeirsson 8, Egill Jónsson 4, Ásgeir Bragi Bryde Þórðarson 2, Bóas Karlsson 1, Helgi Marinó Kristófersson 1.
Varin skot: Ari Dignus Maríuson 12.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.



