- Auglýsing -
Styrmir Hugi Sigurðarson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild HK. Hann er einn af efnilegri leikmönnum félagsins og hefur látið talsvert til sín taka með HK-liðinu í 18 leikjum í Olísdeildinni á leiktíðinni.
„Það er mikið fagnaðarefni og ríkir mikil ánægja innan félagsins með að Styrmir haldi áfram sinni þróun sem leikmaður í búningi HK. Framtíðin er björt og það verður spennandi að sjá Styrmi taka sín næstu skref í handboltanum með HK á komandi árum,“ segir m.a. í tilkynningu HK.
- Auglýsing -



