Varnarmaðurinn sterki hjá KA, Daði Jónsson, sleit hásin á æfingu liðsins í gærkvöldi og verður ekki með liðinu fyrr en á næstu leiktíð. Akureyri.net segir frá þessum tíðindum í kvöld. Daði hefur verið kjölfesta í varnarleik KA-liðsins á leiktíðinni.
KA mætir Þór í síðustu umferð Olísdeildar karla í kvöld í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld.
Daði verður ekki eini leikmaður Akureyrarliðanna sem verður fjarri góðu gamni í kvöld að sögn Akureyri.net. Þórsarinn Hafþór Vignisson sneri sig á ökkla í sigurleiknum gegn Aftureldingu og getur ekki tekið þátt í Akureyrarslagnum.
Sömu sögu er að segja af KA-mönnunum Bjarna Ófeigi Valdimarssyni og Motren Linder. Þeir eru meiddir en sá síðarnefndi fór í axlarlið skömmu fyrir undanúrslitaleik KA og ÍR í bikarkeppninni síðla í síðasta mánuði.


