Valur varð í kvöld deildarmeistari Olísdeild karla í handknattleik eftir sigur á ÍBV, 34:28, í Vestmannaeyjum. FH hafnaði í öðru sæti og Haukar í þriðja sæti.
ÍBV náði fjórða sætinu með 27 stig eins og KA sem fékk á sig jöfnunarmark, 31:31, á síðustu sekúndum. Brynjar Hólm Grétarsson skoraði jöfnunarmarkið og gerði út um vonir KA um heimaleikjarétt. ÍBV vann heimaleik sinn við KA með tveimur mörkum en tapaði fyrir norðan með eins marks mun.
KA, Afturelding, Fram og HK taka einnig þátt í úrslitakeppninni. Fyrsta umferð verður leikin 25. og 26. mars.
Hægt er að smella á HBStatz fyrir aftan stöðuna í hverjum leik til þess að fylgjast með uppfærslum.
HK – Haukar 26:23 – leik lokið. (15:10) – HBStatz.
FH – ÍR 34:28 – leik lokið. (17:17) – HBStatz.
ÍBV – Valur 28:34 – leik lokið. (16:16) – HBStatz.
Þór – KA 31:31 – leik lokið. (15:17) – HBStatz.
Selfoss – Afturelding 27:27 – leik lokið. (13:15) – HBStatz.
Stjarnan – Fram 24:26 – leik lokið. (14:10) – HBStatz.



