- Auglýsing -
FH lagði ÍR með sex marka mun, 34:28, í lokaumferð Olísdeildar karla í handknattleik í Kaplakrika í gærkvöld. Tapið gerði endanlega út um vonir ÍR-inga um að eiga einhverja von um að hanga uppi í deildinni. Tveggja ára vist liðsins í Olísdeildinni er lokið. FH-ingar eiga á hinn bóginn fyrir höndum þátttöku í úrslitakeppni Olísdeildar. Þeir höfnuðu í öðru sæti, stigi á eftir deildarmeisturum Vals. FH mætir Íslandsmeisturum Fram í átta liða úrslitum.
Jói Long var að vanda í Kaplakrika í gærkvöld og sendi handbolta.is myndir frá viðureigninni. Nokkrar þeirra birtast hér fyrir neðan.
-smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.
- Auglýsing -


















