Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla lauk í gærkvöld. Þar með er einnig skýrt hvaða átta lið mætast í útsláttarkeppni um fjögur laus sæti í átta liða úrslitum.
Viðureignir útsláttarkeppninnar:
Pick Szeged – Industria Kielce.
-Janus Daði Smárason leikur með Pick Szeged.
Sporting Lissabon – Orlen Wisla Plock.
-Orri Freyr Þorkelsson leikur með Sporting.
GOG – HBC Nantes.
One Veszprém – Paris Saint-Germain.
-Bjarki Már Elísson leikur með One Veszprém.
- Fyrri umferð útsláttarkeppninnar verður 1. og 2. apríl.
- Síðari umferð útsláttarkeppninnar verður 8. og 9. apríl.
Fjögur lið sitja yfir
Füchse Berlin, Aalborg Håndbold, Barcelona og SC Magdeburg hrepptu tvö efstu sæti í riðlakeppninni og sitja reglum samkvæmt yfir í útsláttarkeppninni og taka sæti í átta liða úrslitum.
Átta liða úrslit:
One Veszprém eða PSG – Füchse Berlin.
GOG eða Nantes – Barcelona.
-Viktor Gísli Hallgrímsson er markvörður Barcelona.
Sporting eða Wisla Plock – Aalborg Håndbold.
Pick Szeged eða Kielce – SC Magdeburg.
-Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon leika með SC Magdeburg.
- Fyrri umferð átta liða úrslita verður 29. og 30. apríl.
- Síðari umferð átta liða úrslita verður 6. maí.
- Úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu verður 13. og 14. júní. Leikið verður að vanda í Lanxess Arena í Köln í Þýskalandi.



