Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, færðist upp í fjórða sæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í kvöld eftir sjö marka sigur á MT Melsungen, 31:24, í Kassel í kvöld. Gummersbach fór stigi upp fyrir Lemgo og THW Kiel með 35 stig þegar liðið á 10 leiki eftir af deildarkeppninni.
Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach og gaf eina stoðsendingu. Elliði Snær Viðarsson hafði hægt um sig og skoraði eitt mark auk einnar stoðsendingar. Honum var aldrei vikið af leikvelli.
Reynir Þór Stefánsson og Arnar Freyr Arnarsson skoruðu einu sinni hvor fyrir Melsungen sem situr áfram í áttunda sæti með 28 stig eftir 25 leiki.
Miro Schluroff var markahæstur hjá Gummersbach með sex mörk. Julias Köster og hægri hornamaðurinn Mathis Häseler skoruðu fimm mörk hvor.
Lettinn Dainis Krištopāns var atkvæðamestur leikmanna Melsungen með fimm mörk.
Skiptur hlutur í Eisenach
Í jöfnum leik í Eisenach skildu lið heimamanna og gestanna í Rhein-Neckar Löwen jöfn, 29:29. Oskar Joelsson skoraði jöfnunarmark Eisenach níu sekúndum fyrir leikslok.
Haukur Þrastarson skoraði þrjú mörk Rhein-Neckar Löwen, þar af tvö úr vítaköstum. Hann hélt uppteknum hætti við að vera óspar á stoðsendingar og gaf sex slíkar í kvöld. David Móré, sem kveður Rhein-Neckar Löwen í sumar, var markahæstur með sjö mörk. Felix Aellen skoraði einnig í sjö skipti fyrir Eisenach.
Útivallarsigur hjá Einari
Einar Þorsteinn Ólafsson og liðsfélagar í HSV Hamburg gerðu góða ferð til Hannover og lögðu Hannover-Burgdorf, 37:35. Nicolaj Jørgensen fór á kostum með Hamborgarliðinu og skoraði 14 mörk í 14 skotum; þrjú markanna skoraði Daninn úr vítaköstum. Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði ekki mark en gekk vasklega til verks í vörninni. Varð hann að sætta sig við að vera vikið einu sinni af leikvelli.
Þýski landsliðsmaðurinn Justus Fischer var markahæstur hjá Hannover-Burgdorf með 10 mörk.
Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.
Staðan í þýsku 1. deildinni:




