- Auglýsing -
Guðmundur Bragi Ástþórsson og Ísak Gústafsson skoruðu þrjú mörk hvor þegar TMS Ringsted gerði jafntefli við Skjern, 35:35, á heimavelli Skjern í gærkvöld í 24. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar. Ringsted jafnaði metin á síðustu stundu og átti Guðmundur Bragi stoðsendinguna í jöfnunarmarkinu. Hann átti fjórar stoðsendingar í leiknum og Ísak tvær.
TMS Ringsted situr í níunda sæti þegar tvær umferðir eru eftir. Liðið hefur jafnmörg stig og Fredericia sem er í áttunda sæti. Átta efstu lið deildarinnar komast í úrslitakeppnina í vor. Níunda sæti veitir hins vegar þátttökurétt í umspili um að forðast fall úr deildinni.
Staðan í dönsku úrvalsdeildinni í karlaflokki:
Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -



