Selfoss lagði Stjörnuna, 35:33, í uppgjöri tveggja neðstu liða Olísdeildar kvenna í Sethöllinni á Selfossi í dag í þriðja síðasta leik tímabilsins í deildinni hjá báðum liðum. Með sigrinum höfðu liðin tvö sætaskipti í kjallaranum. Selfoss er nú næst neðst og komið í umspilssæti en Stjarnan situr í botnsætinu og við blasir fall í Grill 66-deildina lánist ekki lífróður leikmanna og þjálfara í tveimur síðustu viðureignunum.
Selfoss á eftir að mæta Haukum á heimavelli í næstsíðustu umferð á miðvikudaginn og ÍR í Skógarseli eftir viku.
Stjarnan fær Fram í heimsókn á miðvikudagskvöld og sækir Hauka heim á Ásvelli eftir viku.
Deildarmeistarar þriðja árið í röð
Lovísa Thompson fór á kostum gegn Fram og dró vagninn fyrir Valslið með 15 mörkum í 32:31 sigri Íslandsmeistaranna. Með sigrinum varð Valur deildarmeistari í Olísdeild kvenna þriðja árið í röð.
Lengi vel blés ekki endilega byrlega fyrir vængbrotið Valsliðið en liðið var öflugra á endasprettinum, ekki síst fyrir stórleik landsliðskonunnar öflugu. Fleiri lögðu svo sannarlega hönd á plóg.
Haukar lögðu ÍBV
ÍBV tapaði í dag fyrir Haukum, 25:23, á Ásvöllum. Haukar hafa leikið vel eftir áramótin eins og Stefán Arnarson annar þjálfari liðsins spáði fyrir í samtali við handbolta.is snemma vetrar þegar margt gekk ekki sem skildi hjá Haukaliðinu.
Haukar sitja í þriðja sæti Olísdeildar, sjö stigum á eftir ÍBV, en aðeins stigi á undan ÍR sem lagði KA/Þór, 32:28, í Skógarseli í dag. Landsliðskonan Sara Dögg Hjaltadóttir átti enn einn stórleikinn fyrir ÍR og skoraði 12 mörk.
Staðan og næstu leikir í Olísdeild kvenna.
Valur 32:31 (14:15).
Mörk Vals: Lovísa Thompson 15, Elísa Elíasdóttir 4, Hildur Björnsdóttir 3, Arna Karitas Eiríksdóttir 2, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 2, Guðrún Hekla Traustadóttir 2, Sara Lind Fróðadóttir 2, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 1, Mariam Eradze 1.
Varin skot: Elísabet Millý Elíasardóttir 0.
Mörk Fram: Ásdís Guðmundsdóttir 7/2, Harpa María Friðgeirsdóttir 7, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 5, Katrín Anna Ásmundsdóttir 3, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 2, Hulda Dagsdóttir 2, Valgerður Arnalds 2, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 1, Íris Anna Gísladóttir 1, Silja Katrín Gunnarsdóttir 1.
Varin skot: Ethel Gyða Bjarnasen 10, 37% – Arna Sif Jónsdóttir 4, 21,1%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Selfoss – Stjarnan 35:33 (17:13).
Mörk Selfoss: Marte Syverud 9/6, Hulda Dís Þrastardóttir 7/1, Eva Lind Tyrfingsdóttir 5, Hulda Hrönn Bragadóttir 4, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 4, Adela Eyrún Jóhannsdóttir 2, Arna Kristín Einarsdóttir 2, Mia Kristin Syverud 2.
Varin skot: Sara Xiao Reykdal 8/1, 30,8% – Selma Þóra Jóhannsdóttir 6/1, 28,6%.
Mörk Stjörnunnar: Sara Katrín Gunnarsdóttir 8/2, Eva Björk Davíðsdóttir 7/3, Inga Maria Roysdottir 5, Natasja Hammer 4, Þóra Hrafnkelsdóttir 3, Aníta Björk Valgeirsdóttir 3/3, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 1, Hanna Guðrún Hauksdóttir 1, Vigdís Arna Hjartardóttir 1.
Varin skot: Margrét Einarsdóttir 8, 26,7% – Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 2, 15,4%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Haukar – ÍBV 25:23 (15:12).
Mörk Hauka: Rakel Oddný Guðmundsdóttir 7, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 5, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 4, Alexandra Líf Arnarsdóttir 2, Embla Steindórsdóttir 2, Sara Marie Odden 2, Aníta Eik Jónsdóttir 1, Inga Dís Jóhannsdóttir 1, Sara Sif Helgadóttir 1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 14.
Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 6, Birna Berg Haraldsdóttir 5, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 3, Ásta Björt Júlíusdóttir 3, Ásdís Halla Hjarðar 2, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 2, Agnes Lilja Styrmisdóttir 1, Amelía Dís Einarsdóttir 1.
Varin skot: Amalia Frøland 15.
ÍR – KA/Þór 32:28 (17:13).
Mörk ÍR: Sara Dögg Hjaltadóttir 12/2, Matthildur Lilja Jónsdóttir 6, Sylvía Sigríður Jónsdóttir 4, Anna María Aðalsteinsdóttir 3, Solveig Lára Kjærnested 2, Ásthildur Bertha Bjarkadóttir 1, Dagbjört Ýr Ólafsdóttir 1, María Leifsdóttir 1.
Varin skot: Sif Hallgrímsdóttir 5, 20,8% – Ingunn María Brynjarsdóttir 2, 18,2%.
Mörk KA/Þórs: Sólveig Lára Kristjánsdóttir 6, Trude Blestrud Hakonsen 5, Susanne Denise Pettersen 5, Tinna Valgerður Gísladóttir 3/3, Hafrún Linda Guðmundsdóttir 3, Elsa Björg Guðmundsdóttir 3, Lydía Gunnþórsdóttir 2/1, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Bernadett Leiner 8/1, 25% – Ástrós Anna Bender 0.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.



