Víkingur varð í dag deildarmeistari í Grill 66-deild karla og leikur þar með að öllu forfallalausu í Olísdeildinni á næstu leiktíð. Víkingar lögðu Hauka 2 í hörkuleik á Ásvöllum, 36:34, eftir að hafa verið yfir, 20:18, þegar fyrri hálfleikur var að baki.
Sigur Víkinga í deildinni gat vart orðið naumari. Grótta hafnaði í öðru sæti með 40 stig eins og Víkingur. Síðarnefnda liðið stendur betur að vígi í innbyrðis viðureignum.

Víkingur var síðast í Olísdeildinni keppnistímabilið 2023/2024 en lið félagsins hefur farið reglulega á milli deildanna árum saman.
Grótta tekur þátt í umspili Olísdeildar karla ásamt Fjölni og Herði úr Grill 66-deildinni og Stjörnunni sem varð næst neðst í Olísdeildinni. Þar sem ekki er öllum leikjum lokið í Grill 66-deildinni er ekki hægt að slá föstu um það hver mætir hverjum. Umspilið á að hefjast 24. mars en einnig hafa 27. og 30. mars verið bókaðir leikdagar fyrir fyrstu umferð. Vinna þarf í tvígang til þess að komast í úrslit umspilsins. Fyrsti leikur umspilsins er áætlaður 8. apríl.

Úrslit dagsins í Grill 66-deild karla:
Haukar 2 – Víkingur 34:36 (18:20).
Mörk Hauka: Birkir Snær Steinsson 8, Daníel Wale Adeleye 7, Egill Jónsson 7, Jón Karl Einarsson 6, Daníel Máni Sigurgeirsson 4, Jónsteinn Helgi Þórsson 2.
Varin skot: Ari Dignus Maríuson 11.
Mörk Víkings: Ásgeir Snær Vignisson 11, Halldór Ingi Óskarsson 5, Brynjar Jökull Guðmundsson 4, Ísak Óli Eggertsson 4, Rytis Kazakevicius 3, Kristófer Snær Þorgeirsson 2, Jóhann Reynir Gunnlaugsson 2, Páll Þór Kolbeins 2, Kristján Helgi Tómasson 1, Stefán Scheving Th. Guðmundsson 1, Þorfinnur Máni Björnsson 1.
Varin skot: Daði Bergmann Gunnarsson 12, Rökkvi Pacheco Steinunnarson 1.
Grótta – Fram 2 43:31 (21:16).
Mörk Víkings: Atli Steinn Arnarson 11, Tómas Bragi Lorriaux Starrason 9, Bessi Teitsson 4, Gísli Örn Alfreðsson 4, Gunnar Hrafn Pálsson 4, Sigurður Finnbogi Sæmundsson 3, Antoine Óskar Pantano 2, Kári Kvaran 2, Sæþór Atlason 2, Ari Pétur Eiríksson 1, Þorgeir Bjarki Davíðsson 1.
Varin skot: Hannes Pétur Hauksson 12, Þórður Magnús Árnason 1.
Mörk Fram 2: Gabríel Jónsson Kvaran 7, Max Emil Stenlund 6, Arnþór Sævarsson 4, Daníel Stefán Reynisson 3, Kristófer Tómas Gíslason 3, Alex Unnar Hallgrímsson 2, Mikael Hrafn Loftsson 2, Steinar Már Einarsson Clausen 2, Dagur Árni Sigurjónsson 1, Ólafur Jón Guðjónsson 1.
Varin skot: Garpur Druzin Gylfason 8.
Fjölnir – HK 2 35:26 (20:13).
Mörk Fjölnis: Ari Magnússon 6, Óli Fannar Pedersen 5, Kristján Ingi Kjartansson 4, Victor Máni Matthíasson 4, Ólafur Atli Malmquist Hulduson 3, Viktor Berg Grétarsson 3, Þorleifur Rafn Aðalsteinsson 3, Aron Breki Oddnýjarson 2, Eiríkur Emil Hákonarson 2, Bergur Bjartmarsson 1, Guðjón Snær Traustason 1, Ólafur Atli Malmquist Hulduson 1.
Varin skot: Bergur Bjartmarsson 15.
Mörk HK 2: Bjarki Freyr Sindrason 6, Ingibert Snær Erlingsson 5, Örn Alexandersson 5, Kristófer Stefánsson 3, Kristófer Stefánsson 2, Viktor Bjarki Einarsson 2, Atli Hrafn Gunnarsson 1, Ásgeir Helgi Róbertsson 1, Elías Ingi Gíslason 1.
Varin skot: Patrekur Guðni Þorbergsson 4, Patrekur Jónas Tómasson 3.
Hvíti riddarinn – ÍH 34:29 (18:13).
Mörk Hvíta riddarans: Gísli Rúnar Jóhannsson 9, Kristján Andri Finnsson 5, Andri Freyr Friðriksson 4, Brynjar Búi Davíðsson 4, Haukur Guðmundsson 4, Adam Ingi Sigurðsson 3, Kristján Hrafn Kristjánsson 3, Alexander Sörli Hauksson 1, Magnús Kári Magnússon 1.
Varin skot: Sigurjón Bragi Atlason 12 – Bergvin Snær Alexandersson 1.
Mörk ÍH: Brynjar Narfi Arndal 14, Bjarki Jóhannsson 4, Róbert Dagur Davíðsson 4, Halldór Ingi Jónasson 3, Dagur Aron Jónsson 2, Veigar Snær Sigurðsson 2.
Varin skot: Kristján Rafn Oddsson 10.
Leikur í gærkvöld:
Valur 2 – Selfoss 2 39:27 (19:16).
Mörk Vals 2: Dagur Leó Fannarsson 11, Daníel Montoro 9, Sigurður Atli Ragnarsson 4, Hrafn Þorbjarnarson 3, Daníel Örn Guðmundsson 2, Jóhann Ágústsson 2, Dagur Ármannsson 2, Knútur Gauti Eymarsson Kruger 2, Auðunn Páll Gestsson 1, Bragi Þór Arnarsson 1, Matthías Ingi Magnússon 1.
Varin skot: Jens Sigurðarson 10, Anton Máni Francisco Heldersson 4.
Mörk Selfoss 2: Aron Leo Guðmundsson 11, Bjarni Valur Bjarnason 6, Dagur Rafn Gíslason 3, Hákon Garri Gestsson 3, Hilmar Bjarni Ásgeirsson 1, Dagbjartur Máni Björnsson 1, Bartosz Galeski 1, Þorleifur Tryggvi Ólafsson 1.
Varin skot: Ísak Kristinn Jónsson 10, Garðar Freyr Bergsson 1.



