Lena Margrét Valdimarsdóttir og stöllur hennar í sænska liðinu Skara HF töpuðu fyrir Boden Handboll IF, í úrslitaleik sænsku bikarkeppninnar í dag, 33:32. Úrslit leiksins voru knúin fram í vítakeppni en jafnt var eftir 60 mínútna leik í Skövde Arena, 30:30.
Lena Margrét skoraði þrjú mörk í úrslitaleiknum og var ein þeirra sem brást bogalistin í vítakeppninnni í lokin.
Skara var með tveggja marka forskot í hálfleik, 17:15. Fljótlega í síðari hálfleik jafnaðist leikurinn og var hnífjafn eftir það. Frida Höglund jafnaði metin fyrir Boden, 30:30, þegar 80 sekúndur voru til leiksloka. Hvorugu liði tókst að bæta við mörkum eftir það. Þar af leiðandi var gripið til vítakeppni til þess að fá fram hreinum úrslit.
Boden er í þriðja sæti sænsku úrvalsdeildarinnar en Skara situr í þriðja sæti þegar tvær umferðir eru eftir áður en úrslitakeppnin hefst.
Kræktu ekki í bronsið
Berta Rut Harðardóttir skoraði fjögur mörk þegar lið hennar Kristianstad HK steinlá fyrri Höörs HK H65 í viðureign um bronsverðlaunin, 32:20. Höörs HK H65 tóku leikinn alls ekki neinum vettlingatökum. Má segja að úrslitin hafi ráðist þegar í fyrri hálfleik. Staðan var 21:8, Höörs HK H65 í hag eftir 30 mínútna leik.
Lena Margrét leikur til úrslita í bikarnum




