-Auglýsing-

Magdeburg er áfram með örugga forystu eftir nauman sigur

- Auglýsing -

SC Magdeburg heldur áfram öruggri forystu í þýsku 1. deildinni í handknattleik eftir nauman sigur á harðskeyttum leikmönnum Bergischer HC í Mitsubishi Electric Halle í Düsseldorf í dag, 27:25. Magdeburg hefur sjö stiga forskot í efsta sæti þegar níu umferðir eru eftir. Füchse Berlin getur reyndar náð öðru sætinu af Flensburg síðar í dag með sigri á HC Erlangen. Takist það verður sex stiga munur á tveimur efstu liðum deildarinnar.


Ómar Ingi Magnússon hélt upp á fæðingu sonar á dögunum með stórleik í Düsseldorf. Hann skoraði níu mörk auk einnar stoðsendingar. Felix Claar skoraði 10 mörk. Claar er væntanlegur til Íslands í vikunni með sænska landsliðinu.

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu. Elvar Örn Jónsson var umsvifamikill í vörn Magdeburg og var m.a. einu sinni vikið af leikvelli.

Noah Beyer skoraði sjö mörk fyrir Bergischer sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar við annan mann. Bergischer er í fjórða neðsta sæti þýsku 1. deildarinnar.

Eitt stig hjá Blæ

Blær Hinriksson og liðsfélagar sitja áfram í neðsta sæti þýsku 1. deildarinnar. Þeir gerðu jafntefli við Stuttgart á heimavelli í dag, 29:29. Blær skoraði tvö mörk, gaf þrjár stoðsendingar og var einu sinni vikið af leikvelli.

Franz Semper skoraði níu mörk fyrir Leipzig sem er stigi á eftir Wetzlar sem vann GWD Minden í gærkvöld.

Torben Matzken skoraði sjö mörk og var markahæstur hjá Stuttgart.

Ýmir og félagar lögðu Lemgo

Ýmir Örn Gíslason fyrirliði Göppingen var að vanda með liðinu í dag þegar það lagði Lemgo, 30:27, á heimavelli Lemgo-liðsins. Göppingen færðist upp í 10. sæti deildarinnar með sigrinum sem er athyglisvert í ljósi góðrar frammistöðu Lemgo á tímabilinu.

Ýmir Örn skoraði ekki mark í leiknum. Elias Newel skoraði átta mörk fyrir Göppingen.

Niels Gerardus Versteijnen var atkvæðamestur leikmanna Lemgo með níu mörk.

Uppfært:

Füchse Berlin fór létt með HC Erlangen á heimavelli í kvöld, 45:29.

Andri Már Rúnarsson og Viggó Kristjánsson skoruðu þrjú mörk hvor fyrir HC Erlangen. Andri Már átti eina stoðsendingu og Viggó fjórar.

Daninn Mathias Gidsel skoraði 11 mörk fyrir Füchse Berlin og landi hans Lasse Andersson skoraði í níu skipti.

Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -