Orri Freyr Þorkelsson landsliðsmaður í handknattleik átti enn einn stórleikinn með Sporting Lissabon í kvöld þegar liðið vann Belenenses, 46:28, á heimavelli í 8-liða úrslitum portúgölsku bikarkeppninnar í handknattleik.
Orri Freyr skoraði 10 mörk og var markahæsti leikmaður vallarins. Bræðurnir Martím og Francisco Costa höfðu sig lítt í frammi og skoruðu aðeins sjö mörk samanlagt.
Til stóð að Stiven Tobar Valencia og liðsfélagar í Benfica mættu Povoa í síðasta leik átta liða úrslita bikarkeppninnar í kvöld. Á huldu er að leikurinn hafi farið fram.
Auk Sporting eru Martimo og Aguas Santas komin í undanúrslit bikarkeppninnar.
Þorsteinn Leó Gunnarsson og liðsfélagar í Porto heltust úr lestinni í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar eftir tap á heimavelli fyrir Sporting, 40:35, 7. febrúar.



