Nokkur hópur yngri leikmanna var kallaður inn á æfingu landsliðsins í handknattleik karla sem fram fór fyrir hádegið í Safamýri. Ástæða þess var m.a. sú að hluti landsliðshópsins var við kappleiki með félagsliðum í gær og tókst ekki að komast í tæka tíð á æfinguna fyrir hádegið í dag.
Meðal þeirra sem Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari kallaði til æfingarinnar voru ÍR-ingarnir Jökull Blöndal Björnsson og Patrekur Smári Arnarsson, Ingvar Dagur Gunnarsson úr FH, Eyjamaðurinn Elís Þór Aðalsteinsson og Daníel Montoro úr Val.
Einnig þess var Dagur Gautason hornamaður KA á æfingunni en hann telst ekki lengur til unglingalandsliðsmanna. Dagur, sem var í 35-manna EM-hópnum síðast, hljóp í skarðið fyrir Orra Frey Þorkelsson sem tók þátt í bikarleik með Sporting í Lissabon í gærkvöld.
Þeir leikmenn landsliðsins sem vantaði á æfinguna í gær koma til landsins í dag og verða albúnir til þess að mæta á æfingu á morgun.
Enn má fá miða á landsleikina
Íslenska landsliðið mætir Svíum í tveimur vináttuleikjum á Hlíðarenda og í Kaplakrika á fimmtudagskvöld og á laugardag. Enn munu vera eftir örfáir miðar á leikina tvo, ekki síst þann fyrri.
Miðasala á landsleikina – smella hér.




