- Auglýsing -
Uppselt er á síðari landsleik Íslands og Svíþjóðar í handknattleik karla sem fram fer á laugardaginn í Kaplakrika klukkan 17. Frá því greinir HSÍ í tilkynningu í kvöld.
Enn eru til miðar á fyrri vináttulandsleikinn við Svía sem fer fram á fimmtudaginn í N1-höllinni á Hlíðarenda kl. 19.30. HSÍ segir að hver sé að verða síðastur að kaupa aðgöngumiða á þá viðureign.
Í Smáralind á morgun
Áður en til leikjanna kemur fá stuðningsmenn tækifæri til að hitta landsliðsmenn. Þeir verða í Smáralind á morgun, þriðjudag, klukkan 16.30 og gefa eiginhandaráritanir.
Áhugasamir geta tryggt sér miða á fyrri leik Íslands og Svíþjóðar hér:
- Auglýsing -



