-Auglýsing-

Janus Daði hefur ekki jafnað sig af axlarmeiðslum

- Auglýsing -

Óvíst er með hversu mikið Janus Daði Smárason tekur þátt í vináttulandsleikjunum við Svía á fimmtudaginn og laugardaginn. Hann hefur ekki jafnað sig fyllilega af axlarmeiðslum sem hann varð fyrir í viðureigninni við Króata um bronsverðlaunin á Evrópumótinu í Danmörku þann 1. febrúar.

Hefur harkað af sér

„Janus Daði hefur verið að harka af sér í síðustu leikjum með Szeged. Við ætlum að meta stöðuna á honum. Sjúkraþjálfararnir okkar, Jóndi og Jón Gunnar, vinna með Janusi næstu daga. Við sjáum svo til hvað varðar þátttöku hans í leikjunum þegar að þeim kemur,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik við handbolta.is spurður um stöðuna á leikmannahópnum sem hann valdi á dögunum til þátttöku í vináttuleikjunum við Svía á fimmtudag og laugardag.

Ísak meiddur

Eins og kom fram í fréttum í gærmorgun var Ísak Steinsson markvörður Drammen að draga sig út úr landsliðshópnum á sunnudagskvöld vegna meiðsla sem hann varð fyrir fyrr um daginn í viðureign Drammen og Nærbö í norsku úrvalsdeildinni.

Miðar til á fyrri leikinn

Uppselt er á leikinn í Kaplakrika en enn eru óseldir aðgöngumiðar á viðureignina í N1-höllinni á Hlíðarenda á fimmtudagskvöld klukkan 19.30.

Miðasala á landsleikinn á fimmtudaginn.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -