„Ég finn að það ríkir eftirvænting meðal strákanna að fá svo sterkt landslið í heimsókn til okkar stuttu eftir EM. Þar fyrir utan erum við farnir að horfa fram á veginn og til þess sem tekur við,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla. Landsliðið kom saman í fyrsta sinn í gær eftir Evrópumótið í janúar. Fram undan eru tveir vináttuleikir við Svía á fimmtudag og laugardag á Hlíðarenda og í Kaplakrika.
Tíminn er fljótur að líða
„Við erum komnir inn á HM á næsta ári. Það veitir okkur ákveðið svigrúm en á móti kemur að tíminn er fljótur að líða fram að næsta stórmóti. Ég verð að huga fram í tímann og nýta hvert tækifæri sem ég fæ með landsliðinu, ef ég næ að semja við HSÍ, til þess að horfa til framtíðar og halda áfram að byggja upp sterkt landslið,“ segir Snorri Steinn.
Mæta alltaf einbeittir
„Ég hrósa strákunum fyrir að mæta alltaf einbeittir til undirbúnings fyrir hvert verkefni og svo er einnig raunin núna. Það er eðlilegt að leikmenn sem búa erlendis vilji nota tímann til þess að hitta ættingja og vini en að sama skapi vil ég að þeir séu einbeittir þegar inn í salinn er komið til æfinga og leikja.“
Fullar keppnishallir
Snorri Steinn segir að sú staðreynd að allir sterkustu handknattleiksmenn landsins, að Ómari Inga Magnússyni undanskildum, séu komnir til landsins ásamt eins öflugu landsliði og Svíar hafa á að skipa eigi að nægja til þess að almenningur fylli keppnishallirnar á Hlíðarenda og Kaplakrika á fimmtudag og laugardag.
„Það verður stemning á leikjunum og við munum leggja okkur alla fram við að skemmta fólki,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla við handbolta.is.
Miðar til á fyrri leikinn
Uppselt er á leikinn í Kaplakrika en enn eru óseldir aðgöngumiðar á viðureignina í N1-höllinni á Hlíðarenda á fimmtudagskvöld klukkan 19.30.
Miðasala á landsleikinn á fimmtudaginn.



