Leikir næstsíðustu umferðar Olísdeildar kvenna fara fram í kvöld. Þegar er ljóst að Valur er deildarmeistari og fer beint í undanúrslit úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitilinn. ÍBV hafnar í öðru sæti og fylgir Valskonum beint í undanúrslitin.
Fjögur lið í sætum þrjú til sex hafa þá tryggt sæti sín í fyrstu umferð úrslitakeppninnar; Haukar, ÍR, Fram og KA/Þór. Ýmislegt getur þó enn breyst í þeirri baráttu þar sem Haukar og ÍR berjast um þriðja sætið og Fram og KA/Þór kljást um fimmta sætið.
Ljóst er að Haukar og ÍR hafa þegar tryggt sér heimavallarréttinn í viðureignum sínum gegn Fram og KA/Þór í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Neðsta lið Olísdeildar þegar upp verður staðið eftir síðustu umferðina á laugardaginn fellur í Grill 66-deildina. Næst neðsta liðið tekur þátt í umspili um sæti í Olísdeildinni ásamt þremur liðum Grill 66-deildarinnar.
Olísdeild kvenna, 20. umferð:
Sethöllin: Selfoss – Haukar.
Hekluhöllin: Stjarnan – Fram.
Vestmannaeyjar: ÍBV – ÍR.
KA-heimilið: KA/Þór – Valur.
- Leikirnir hefjast klukkan 18.
- Handboltapassinn sendir út allar viðureignir.
Staðan í Olísdeild kvenna:
| Sæti | Félag | Leikir | S | J | T | Stig | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | ![]() | Valur | 19 | 17 | 0 | 2 | 34 |
| 2 | ![]() | ÍBV | 19 | 15 | 0 | 4 | 30 |
| 3 | ![]() | Haukar | 19 | 11 | 1 | 7 | 23 |
| 4 | ![]() | ÍR | 19 | 11 | 0 | 8 | 22 |
| 5 | ![]() | Fram | 19 | 8 | 1 | 10 | 17 |
| 6 | ![]() | KA/Þór | 19 | 7 | 1 | 11 | 15 |
| 7 | ![]() | Selfoss | 19 | 3 | 0 | 16 | 6 |
| 8 | ![]() | Stjarnan | 19 | 2 | 1 | 16 | 5 |
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.











