-Auglýsing-

Sigvaldi Björn hefur samið við Hannover-Burgdorf

- Auglýsing -

Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handknattleik, flytur til Þýskalands í sumar. Hann hefur samið við Hannover-Burgdorf í þýsku 1. deildinni og er ætlað að fylla skarð hægri hornamannsins og fyrirliðans, Marius Steinhauser, sem ákveðið hefur að gerast liðsmaður Rhein-Neckar Löwen frá og með næstu leiktíð.

Sigvaldi Björn, sem leikið hefur 86 landsleiki og skorað í þeim 230 mörk, kemur frá norska félaginu Kolstad IL og skrifar undir þriggja ára samning við Hannover-Burgdorf.


Sigvaldi Björn er 31 árs gamall hægri hornamaður sem hefur verið fyrirliði Kolstad undanfarin ár og hefur leikið með liðinu frá árinu 2022. Hann var samningsbuninn liðinu til ársins 2030.

Sigvaldi Björn hefur áður leikið með Kielce í Póllandi, Elverum Håndball í Noregi og Aarhus Håndbold, Bjerringbro-Silkeborg og Vejle Håndbold í Danmörku, þar sem meistaraflokksferill hans hófst.

Snemma í þessum mánuði var Sigvaldi Björn orðaður við Hannover-Burgdorf og Gummersbach í þýskum fjölmiðlum.

Eitthvað rétt við þetta

„Það er eitthvað rétt við það að ganga til liðs við félagið fyrir næsta tímabil og spila í bestu deild heims. Það að fá að spila fyrir framan stuðningsmenn heimaliðsins í svona stórri höll er mjög þýðingarmikið fyrir mig og ég mun njóta hverrar einustu mínútu á vellinum.

Ég hlakka til þeirrar áskorunar sem fylgir því að vera hluti af liði sem hefur svona mikið svigrúm til þess að bæta sig,“ segir Sigvaldi Björn í tilkynningu á heimasíðu Hannover-Burgdorf, þar sem Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -