Elmar Erlingsson handknattleiksmaður hjá þýska liðinu Nordhorn-Lingen verður úr leik í þrjár til sex vikur vegna höggs sem hann fékk á aðra öxlina í viðureign Nordhorn og Potsdam síðasta föstudag. Elmari var hrint er hann var í opnu færi.
Segulómskoðun leiddi í ljós að Elmar slapp við brot en hlaut fyrsta stigs mar á axlarliðnum. Liðbönd eru sem betur fer öll heil en marið bendir til að veruleg innvortis blæðing hafi orðið.
Axlarsérfræðingur sem skoðaði niðurstöður segulómskoðunarinnar segir að Elmar verði frá keppni í a.m.k. þrjár vikur en hugsanlega allt að sex vikur, sem þýðir út næsta mánuð.
Elmar er að ljúka öðru tímabili sínu með Nordhorn sem situr í sjöunda sæti 2. deildar. Snemma í febrúar framlengdi Elmar samning sinn til eins árs, út leiktíðina sem lýkur vorið 2027.



