Landslið kvenna í handknattleik, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, datt ekki í lukkupottinn þegar dregið var í riðla heimsmeistaramótsins í dag. Ísland dróst í riðil með landsliðum Svartfjallalands og Tékklands auk bandaríska landsliðsins sem er veikasta lið riðilsins. Tvö efstu lið riðilsins komast í 16-liða úrslit en tvö þau neðri leika um sæti 17 til 32.
Til Kína í annað sinn
Heimsmeistaramót 20 ára landsliða kvenna verður haldið í Jinzhong í Kína frá 24. júní til 5. júlí í sumar. HM 18 ára landsliða kvenna fór einnig fram í Kína fyrir tveimur árum og víst má telja að einhverjar sem voru í 18 ára landsliðinu sumarið 2024 fari á ný til Kína síðla í júní til þátttöku á HM 20 ára landsliða.
Halldór Stefán kallar saman til æfinga 20 ára landslið kvenna
Riðlaskiptingin:





