Handknattleiksmaðurinn Ólafur Andrés Guðmundsson kveður sænska úrvalsdeildarliðið HF Karlskrona þegar keppnistímabilið verður úti í vor. Félagið tilkynnti þetta í gær. Ólafur Andrés kom til félagsins fyrir þremur árum. Meiðsli hafa sett töluvert strik í reikninginn hjá Ólafi Andrési á keppnistímabilinu sem nú stendur yfir. Fyrir vikið hefur hann lítið sem ekkert komið við sögu innan vallar.
Ólafur Andrés verður 36 ára gamall í maí. Eftir að hann yfirgaf FH fyrir 15 árum hefur hann leikið með félagsliðum í Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi, Sviss en lengst af með IFK Kristianstad Svíþjóð hvað hann var kjölfesta í meistaraliði félagsins um árabil.
Ólafur Andrés lék nánast sleitulaust með landsliðinu frá 2009 til 2023. Landsleikirnir eru vel á annað hundrað.
Óvíst er hvort Ólafur Andrés lætur gott heita á handknattleiksvellinum eða freistar þess að reyna fyrir sér annarastaðar.



