Þótt ein umferð sé eftir óleikin í Olísdeild kvenna er hægt að slá föstu hvaða lið mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem ráðgert er að hefjist laugardaginn 28. mars. Haukar, ÍR, Fram og KA/Þór taka þátt en tvö efstu liðin, deildarmeistarar Vals og ÍBV sitja yfir.
Í fyrstu umferð mætast:
Haukar – KA/Þór.
ÍR – Fram.
Haukar og ÍR eiga heimaleikjarétt. Fyrsta viðureign verður á heimavelli liðann og einnig oddaleikir, þ.e. viðureignir þriðju umferðar ef til þeirra kemur.
- Leikdagar eru laugardagur 28. mars, miðvikudagur 1. apríl og laugardagur 4. apríl.
Sigurlið fyrstu umferðar komast skiljanlega áfram í undanúrslit þegar Valur og ÍBV blanda sér í baráttuna. Fyrstu leikir undanúrslita verða háðir 15. apríl. Ellefu daga hlé milli fyrstu umferðar og þar til undanúrslit hefjast skýrast af tveimur síðustu leikjum landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins, 8. og 12. apríl.
Í undanúrslitum mætast:
Valur – ÍR eða Fram.
ÍBV – Haukar eða KA/Þór.
- Leikdagar eru 15., 18., 22., 25. og 28. apríl. Vinna þarf þrjár viðureignir.
Fyrsti úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitilinn verður 2. maí. Ef fimm leikja verður þörf er áformað að oddaleikurinn verði mánudaginn 18. maí.
Umspilið hefst 29. mars
Umspil Olísdeildar kvenna hefst 29. mars. Víst er að Víkingur og FH taka þátt en hvert þriðja liðið verður skýrist á sunnudaginn þegar síðustu leikir Grill 66-deildar hafa verið háðir. Einnig er ekki hægt að slá föstu hvaða lið verður fulltrúi Olísdeildar umspilinu. Það liggur ekki fyrir fyrr en síðasta umferð Olísdeildar verður um garð gengin á laugardaginn.
- Leikdagar fyrri hluta umspils Olísdeildar kvenna: 29. mars, 1. og 4. apríl.
- Leikdagar síðari hluta umspils Olísdeildar kvenna: 16., 19., 23., 26. og 29. apríl.




