-Auglýsing-

Silja Katrín heldur hiklaust áfram með Fram

- Auglýsing -

Handknattleikskonan efnilega, Silja Katrín Gunnarsdóttir, hefur framlengt samning sinn við Fram, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá handknattleiksdeild félagsins.


„Silja Katrín er örfhent og spilar í hægra horni, er bráðefnileg og hefur verið í yngri landsliðum Íslands. Silja hefur verið að koma til baka eftir erfið hnémeiðsli og hefur stimplað sig vel inn á æfingar og í leikjum. Við í Fram hlökkum til að sjá hana vaxa og dafna á næstu árum og fögnum því að hafa hana áfram í okkar herbúðum, enda passar hún vel inn í okkar módel sem byggir á því að gefa okkar uppöldu leikmönnum pláss til að ná árangri á stærsta sviðinu,“ segir í tilkynningu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -