Landsliðskonan Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín hefur samið við þýska 1. deildarliðið Thüringer HC. Tekur samningurinn gildi í sumar og kveður hún þar með Fram sem hún hefur leikið með undanfarin þrjú ár. Alfa Brá fylgir í kjölfar unnusta síns, Reynis Þórs Stefánssonar, sem leikur með MT Melsungen.
Er ótrúlega spennt
„Ég er ótrúlega spennt fyrir því að ganga til liðs við Thüringer HC. Þetta er metnaðarfullt og virt félag og ég tel mig vera á nákvæmlega réttum stað. Ég hlakka til þessa nýja kafla og að gefa allt mitt fyrir liðið,“ er haft eftir Ölfu Brá í tilkynningu félagsins í dag.
Vakti athygli á HM
Alfa Brá hefur leikið 16 A-landsleiki og það var einmitt á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi undir lok síðasta árs sem hún vakti athygli hins þrautreynda þjálfara Thüringer HC, Herbert Müller, eftir því sem hann greinir frá í tilkynningu félagsins. Müller segir fyrst og fremst varnarhæfileika Ölfu Brár hafa orðið til þess að ákveðið var að leita samnings við hana.
„Hún var mjög hrifin af hugmyndinni um að ganga til liðs við THC og ég er sannfærður um að við eigum eftir að vinna vel saman,“ segir Müller.
Vann Evrópudeildina í fyrra
Thüringer HC vann Evrópudeildina á síðustu leiktíð og hefur þegar öðlast þátttökurétt í 8-liða úrslitum keppninnar.
Thüringer HC situr um þessar mundir í fjórða sæti þýsku 1. deildarinnar. Á sunnudaginn tapaði liðið fyrir Blomberg-Lippe í viðureigninni um brosnverðlaunin í þýsku bikarkeppninni. Í upphafi leiktíðar vann Thüringer HC meistarakeppnina eftir að hafa hlaupið í skarðið í keppninni fyrir Ludwigsburg sem lagði upp laupana í ágúst.
Thüringer HC er með bækistöðvar í Nordhausen í Þyringalandi í miðju Þýskalandi en einnig eiga Erfurt og Bad Langensalza aðild að félaginu. Erfurt er meginborgin í Þyringalandi
Tímabilinu er lokið hjá Ölfu Brá




