-Auglýsing-

Íslenska landsliðið leikur í Magdeburg á HM 2027 – Á sama stað 20 árum síðar

- Auglýsing -

Alþjóða handknattleikssambandið staðfesti í gær að íslenska landsliðið í handknattleik karla mun leika í Magdeburg í riðlakeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Þá verða 20 ár liðin frá því að íslenska landsliðið lék síðast á heimsmeistaramóti í Magdeburg og komst eftir krappan dans í milliriðla.


Íslenska landsliðið verður í H-riðli en einnig verður F-riðill í borginni í austurhluta Þýskalands þar sem íslenskir handknattleiksmenn og þjálfarar hafa gert garðinn frægan undanfarinn aldarfjórðung. Um þessar mundir leika Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon með Evrópumeisturum SC Magdeburg.

- Leikdagar Íslands í Magdeburg verða 15., 17. og 19. janúar. Dregið verður í riðla heimsmeistaramótsins 10. júní á Hofbräuhaus í München. Ísland verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla.
- Þrjú lið af fjórum komast áfram úr riðlakeppninni í Magdeburg. Má telja næsta víst að íslenska landsliðið komist áfram í milliriðil þrjú sem leikinn verður í ZAG-Arena í Hannover 20., 22. og 24. janúar.

Raðað hefur verið niður í styrkleikaflokka þótt ekki séu öll kurl komin til grafarar varðandi þátttökuþjóðir:

Flokkur 1: Danmörk, Þýskaland, Króatía, Ísland, Portúgal, Svíþjóð, Egyptaland, Argentína.

Flokkur 2: Frakkland eða Tékkland, Finnland/Svartfjallland eða Slóvenía, Noregur eða Tyrkland/Rúmenía, Serbía eða Litáen/Ungverjaland, Spánn eða Georgía/Ísrael, Sviss eða Ítalía, Bosnía/Kósovó eða Færeyjar, Úrkaína/Slóvakía eða Norður Makedónía.

Flokkur 3: Holland eða Grikkland/Belgía, Austurríki eða Pólland/Lettland, Brasilía, Barein, Túnis, Grænhöfðaeyjar, Chile, óráðstafað.

Flottur 4: Katar, Kúveit, Japan, Alsír, Angóla, Úrugvæ, boðskor 1, boðskort 2.
-Stjórn Alþjóða handknattleikssambandsins deilir út boðskortunum tveimur skömmu áður en dregið verður í riðla 10. júní.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -