- Auglýsing -
Leikstjórnandinn Gísli Rúnar Jóhannsson hefur framlengt samning sinn við Aftureldingu til næstu tveggja ára. Hann kom til Aftureldingar frá Haukum fyrir þremur árum.
Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Gísla Rúnari síðustu árin. Í tilkynningu Aftureldingar í dag kemur fram að hann sé jafn og þétt að sækja í sig veðrið. Hefur Gísli Rúnar leikið með Hvíta riddaranum í Grill 66-deildinni og skoraði 42 mörk í fjórum leikjum.
Einnig er Gísli Rúnar sagður efnilegur þjálfari og hefur verið að þjálfa í yngri flokkum Aftureldingar við góðan orðstír og mun hann halda því hlutverki áfram.
- Auglýsing -



