Ísrael komst áfram úr forkeppni heimsmeistaramóts karla í handknattleik eftir að hafa lagt landslið Georgíu samanlagt með eins marks mun, 60:59, í tveimur leikjum sem fram fóru í Georgíu í dag og á fimmtudaginn. Ísraelska landsliðið mætir spænska landsliðinu í umspilsleikjum eftir miðjan maí. Sigurliðið tryggir sér keppnisrétt á HM í Þýskalandi.
Georgíu vann leikinn í dag, 30:28, en tapaði fyrri viðureigninni með þriggja marka mun, 32:29.
Tapið er áfall fyrir landslið Georgíu og landsliðsþjálfarann, Tite Kalandadze. Landslið Georgíu tók þátt í Evrópumótinu í janúar. Fyrir fram var talið að Georgíumenn ættu sigurinn vísan, ekki síst vegna þess að báðir leikirnir fóru fram í Georgíu.
Giorgi Dikhaminjia leikmaður KA var ekki í leikmannahópi Georgíu í leiknum í dag. Hann var með í fyrri viðureigninni á fimmtudagskvöld og skoraði þá m.a. tvö mörk. Örvhenta skyttan Giorgi Tskhovrebadze var markahæstur í dag með átta mörk. Hann átti einnig mörg púðurskot.



