Fram vann öruggan sigur á KA/Þór í næstsíðasta leik Olísdeildar kvenna í handknattleik á þessari leiktíð, 35:25. Leikið var í Lambhagahöll Fram í Úlfarsárdal. Þremur mörkum skakkaði á liðunum þegar fyrri hálfleikur var að baki, 15:12, Fram í hag. Viðureignin átti að fara fram í gær en var frestað vegna ófærðar á leiðinni á milli Akureyrar og Reykjavíkur.
Úrslitin breyta engu um þá stöðu sem liðin voru eða eru í Olísdeildinni. Fram lýkur keppni með 20 stig í fimmta sæti og mætir ÍR í fyrstu umferð úrslitakeppninnar um næstu helgi. KA/Þór, sem hóf tímabilið sem nýliði í deildinni, situr í sjötta sæti með 15 stig og fæst við Hauka í úrslitakeppninni. Fram og KA/Þór hefja mæta andstæðingum sínum á útivelli í upphafsumferðinni.
Mörk Fram: Hulda Dagsdóttir 7, Ásdís Guðmundsdóttir 6/5, Harpa María Friðgeirsdóttir 4, Katrín Anna Ásmundsdóttir 4, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 4, Valgerður Arnalds 3, Silja Katrín Gunnarsdóttir 2, Katla Kristín Hrafnkelsdóttir 2, Íris Anna Gísladóttir 1, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 1, Sunna Jónsdóttir 1.
Varin skot: Arna Sif Jónsdóttir 8, 40% – Ethel Gyða Bjarnasen 5/1, 29,4%.
Mörk KA/Þórs: Trude Blestrud Hakonsen 5, Herdís Eiríksdóttir 5, Lydía Gunnþórsdóttir 5/3, Tinna Valgerður Gísladóttir 4, Susanne Denise Pettersen 3, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 1, Þórunn Nadía Hlynsdóttir 1.
Varin skot: Bernadett Leiner 9, 22% – Selma Sigurðardóttir 0.



