- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Selfoss í þjálfaraleit – Santos á leið til Svíþjóðar

- Auglýsing -

Útlit er fyrir að forráðamenn handknattleiksliðs Selfoss verði að ráða nýjan þjálfara fyrir karlalið sitt. Carlos Martin Santos, þjálfari Selfossliðsins undanfarin ár, er samkvæmt frétt sænska dagblaðsins Aftonbladet, að taka við þjálfun sænska liðsins HK Aranäs. Liðið leikur nú í Allsvenskan, næstefstu deild karla. Fullyrt er að Santos verði kynntur til leiks á allra næstu dögum.


Santos, sem er spænskur, hefur búið hér á landi um árabil. Hann var árum saman ötull þjálfari Harðar á Ísafirði og stýrði liðinu m.a. upp í Olísdeildina vorið 2021.

Sumarið 2023 söðlaði Santos um og hafði í hyggju að verða aðstoðarþjálfari karlaliðs ÍBV og koma að þjálfun annarra flokka félagsins. Babb kom í bátinn og ekki fór Santos til Eyja. Hann flutti þess í stað á Selfoss og hefur verið þjálfari þar síðustu þrjú ár, var aðstoðarþjálfari karlaliðsins 2023/2024 en tók þá við sem aðalþjálfari er liðið féll í Grill 66-deildina. Undir stjórn Santos vann Selfoss-liðið umspil Olísdeildar fyrir ári og lék liðið í Olísdeildinni í vetur. Selfoss-liðið hélt sæti sínu í Olísdeildinni, þvert á spár margra þeirra sem spá hvað gleggst í spilin.

Í næst efstu deild

HK Aranäs var um árabil í sænsku úrvalsdeildinni en lék í næstefstu deild, Allsvenskan, í vetur og verður áfram á næsta keppnistímabili eftir að hafa hafnað í fimmta og rétt misst af sæti í umspili úrvalsdeildar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -