- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Myndskeið: Elvari hælt á hvert reipi eftir stórleik

- Auglýsing -

Elvari Ásgeirssyni var hælt af hverju reipi eftir stórleik með Ribe-Esbjerg í gærkvöld þegar liðið vann Fredericia HK, 31:26, á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Elvar skoraði m.a. 12 mörk í 15 skotum, átti eina stoðsendingu, og var auk þess allt í öllu í vörninni. Bent Nyegaard lofaði frammistöðu Elvars í hástert eftir leikinn er þeir töluðu saman en viðureignin var í beinni útsendingu á TV2 hvar fyrrverandi þjálfari ÍR og Fram hefur verið í sæti sérfræðings um árabil.


Nyegaard sagði m.a. að þetta hafi verið fjórði leikurinn í röð sem Elvar fer á kostum og sé í burðarhlutverki Ribe-Esbjerg. Elvari hafi aldrei verið betri.

Þeir sem vilja spreyta sig á dönsku geta leikið og hlýtt á myndskeiðið hér fyrir neðan.


Ribe-Esbjerg á von um sæti í úrslitakeppninni um meistaratitilinn. Sem stendur er liðið í 10. sæti, tveimur stigum á eftir Fredericia HK þegar hvort lið á einn leik eftir. TM Ringsted er í 10. sæti með 20 stig eins og Ribe-Esbjerg. TMS Ringsted mætir TTH Holstebro í kvöld á heimavelli í næstsíðustu umferð.


Staðan:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -