Íslendingar sem hafa reynt síðustu daga að verða sér út um aðgöngumiða á leiki karlalandsliðsins í handknattleik á heimsmeistaramótinu sem fram fer í janúar hafa gripið í tómt á miðasöluvef mótsins. Svo virðist ekkert vera til af miðum á leikina þrjá sem íslenska landsliðið leikur í Magdeburg í riðlakeppni mótsins. Sömu sögu er að segja um leiki milliriðla í Hannover.
Jón Gunnlaugur Viggósson íþróttastjóri HSÍ sagði við handbolta.is í morgun að ekki sé ástæða fyrir Íslendinga að örvænta þótt enga miða sé að fá á miðasöluvefnum. Útlit er fyrir að einhver fjöldi miða á leikina í riðlakeppnina í Magdeburg og í milliriðlakeppnina í Hannover falli í skaut Íslendinga fyrir milligöngu HSÍ. Tíðinda sé að vænta af miðamálum innan fárra vikna.
Í stöðugu sambandi
„Við höfum verið í stöðugu sambandi við Þjóðverja síðan í EM stóð yfir í janúar vegna aðgöngumiða á leikina. Ég vænti þess að vera með góðar fréttir af miðum innan fárra vikna,“ sagði Jón Gunnlaugur og bað stuðningsmenn landsliðsins ekki að örvænta þótt engir miðar séu fáanlegir á miðasöluvef heimsmeistaramótsins.
Íslenska landsliðið leikur í Magdeburg á HM 2027 – Á sama stað 20 árum síðar
Þjóðvejar ryksuga upp miðana
Þjóðverjar virðast hafa rygsugað upp miðana um leið og þeir voru settir í sölu í desember. Hins vegar var ekki staðfest fyrr en á síðasta fimmtudag að íslenska landsliðið leiki í Magdeburg og þá í Hannover í milliriðlakeppninni. Til að bæta gráu ofan á svart, ef svo má segja, þá er útlit fyrir að Danir leiki einnig í milliriðlakeppninni í Hannover. Danir eins og Þjóðverjar eru þekktir fyrir að horfa langt fram í tímann og verða sér út um aðgöngumiða.
Færri en fyrir 20 árum
Keppnishöllin í Magdeburg rúmar 6.500 áhorfendur í sæti en sú sem leikið verður í Hannover getur tekið á móti 10 þúsund áhorfendum í sæti.
Þess má geta að þegar íslenska landsliðið lék í Magdeburg á HM 2027 var uppselt á alla þrjá leiki Íslands. Þá rúmaði keppnishöllin liðlega 8.000 áhorfendur, m.a. á viðureign Íslands og Ástralíu þótt ljóst væri að um um ójafanan leik yrði að ræða.
Vegna breytinga sem gerðar voru áhorfendarýminu fyrir nokkrum árum og stæðum skipt út fyrir sæti rúmar keppnishöllin í Magdeburg færri en áður var.
Margir rekur minni til þess að fáir miðar stóðu Íslendingum til boða á leiki úrslitahelgina EM karla í janúar.
Dregið verður í riðla HM karla 10. júní í München.
Ísland í efsta flokki á HM – leikstaður liggur ekki fyrir
Hljóðupptaka: Heimkoma „handknattleiksflokksins“ frá HM 1961


