- Auglýsing -
Handknattleikssamband Evrópu hefur birt fróðlegt og skemmtilegt myndskeið frá undanúrslitaviðureign Danmerkur og Íslands og á Evrópumótinu í handknattleik í lok janúar. Myndskeiðið er tekið upp með búkmyndavélum sem dómarar leiksins, Norðmennirnir Lars Jørum og Håvard Kleven voru með.
Koma fram áhugaverð samskipti dómara við leikmenn þegar viðureignin stóð yfir og hvernig dómarar koma fram við leikmenn og hvernig dómararnir skiptast á skoðunum. Dómararnir voru ófeimnir við að vera umbúðalausir í samskiptum við leikmenn sem töldu sig vera órétti beittir. Einnig er fróðlegt að sjá leikinn frá þessu sjónarhorni.
- Auglýsing -



