HK hefur tryggt sér annan leikmann fyrir næstu leiktíð í Olísdeild karla. Í morgun tilkynnti félagið að Tómas Bragi Lorriaux Starrason leikmaður Gróttu hefði ákveðið að söðla um og ganga til liðs við Kópavogsliðið. Fyrr í vikunni greindi HK frá komu Alex Mána Oddnýjarsonar frá Fjölni.
Tómas Bragi er línumaður sem skoraði 110 mörk í 22 leikjum Gróttu í Grill 66-deildinni. Hann gekk til liðs við Gróttu á síðasta sumri frá Fjölni, ef minni tíðindamanns handbolti.is svíkur ekki. Væntanlega á Tómas Bragi að leysa Sigurð Jefferson Guarino af. Sigurður er sagður verða leikmaður Hauka á næstu leiktíð.
Áður en Tómas Bragi klæðist formlega keppnistreyju HK lýkur hann leiktíðinni með Gróttu í umspili Olísdeildar sem hefst á föstudaginn. Grótta mætir Herði í undanúrslitum. Sigurliðið mætir annaðhvort Stjörnunni eða Fjölni í viðureign um keppnisrétt í Olísdeild á næstu leiktíð.


