Þannig lítur út að Einar Örn Jónsson starfsmaður Vals hafi látið kappið bera fegurðina ofurliði í viðureign HK 2 og Vals 2 í 3. flokki kvenna þann 17. mars. Hann var alltént úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ 24. mars eftir að nefndinni barst skýrsla dómara vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar Einars Arnar eftir leikinn.
Matthildur Lilja Jónsdóttir leikmaður ÍR sem hlaut útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik ÍBV og ÍR í Olísdeild kvenna þann 18. mars sleppur hins vegar með skrekkinn. Hún verður gjaldgeng með ÍR í fyrstu viðureign liðsins við Fram í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna á laugardaginn.
Einar Örn og Matthildur Lilja eru minnt á stighækkandi áhrif brota á leikreglum.
Aganefnd HSÍ | Úrskurður 24.03.’26


