- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Landsliðshópurinn hefur verið valinn

- Auglýsing -

Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik hefur valið 16 leikmenn til þess að taka þátt í tveimur síðustu leikjum íslenska landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins 8. og 12. apríl, gegn Færeyingum ytra og Portúgal hér heima.

Harpa María Friðgeirsdóttir leikmaður Fram kemur í stað Dönu Bjargar Guðmundsdóttur, Volda, frá viðureigninni við Svartfellinga ytra 8. mars. Dana Björg sleit liðband í ökkla á dögunum.


Katrín Tinna Jensdóttir og Hafdís Renötudóttir markvörður Vals mæta til leiks á ný eftir að hafa verið fjarverandi í síðasta landsleik, gegn Svartfellingum í Podgorica 8. mars.

Skarð er fyrir skildi að Thea Imani Sturludóttir hefur ekki jafnað sig af langvarandi meiðslum sem hafa haldið henni frá keppni mánuðum saman. Thea var valin í hópinn fyrir fyrri viðureignina við Svartfellinga og gat ekki tekið þátt í leiknum þegar á hólminn var komið.

Opnað hefur verið á miðagjafir á leik Íslands og Portúgal sem fram fer á Ásvöllum, sunnudaginn 12. apríl kl. 16. Besti Bitinn frá Samherja býður fólki frítt á leikinn. Hægt er ná í ókeypis miða á stubb.is.

Landsliðshópurinn:

Markverðir:
Hafdís Renötudóttir, Valur (78/5).
Sara Sif Helgadóttir, Haukar (23/0).

Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, HSG Blomberg-Lippe (68/116).
Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (73/99).
Elín Klara Þorkelsdóttir, IK Sävehof (35/138).
Elín Rósa Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (40/80).
Elísa Elíasdóttir, Valur (31/28).
Harpa María Friðgeirsdóttir, Fram (4/5).
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (22/34).
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (35/35).
Lovísa Thompson, Valur (39/74).
Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (9/1).
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (12/8).
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (47/193).
Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (5/12).
Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukar (5/1).

Staðan í riðlunum: Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja

Hópferð til Færeyja

HSÍ stendur fyrir hópferð til Færeyja á viðureign landsliða Íslands og Færeyja. Um er að ræða einnar nætur pakkaferð. Farið verður út á leikdag, 8. apríl, og komið heim daginn eftir.
Flogið verður með Icelandair beint til Færeyja 8. apríl, miði á Færeyjar-Ísland, gist í eina nótt á Djurhuus Hotel og flogið til baka í beinu flugi 9. apríl.
Rútuferð til og frá flugvelli í Færeyjum er innifalið.
Verð er 125.000 kr. en möguleiki er að framlengja ferð.
Nánari upplýsingar veitir Daníel Franz á netfanginu [email protected].
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -