- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Serbía, Úkraína og Eistland verða andstæðingar Íslands

- Auglýsing -

Íslenska karlalandsliðið í handknattleik dróst í riðil þrjú með Serbíu, Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM 2028. Dregið var í riðla undankeppninnar í Lissabon í kvöld. Ísland var í efsta styrkleikaflokki.

Undankeppnin hefst í nóvember og lýkur í maí 2027 en um sex leikdaga verður að ræða. Tvö lið komast áfram úr hverjum riðli auk fjögurra sem ná bestum árangri í þriðja sæti.

Óstaðfest leikjadagskrá

Ísland – Úkraína, 4. eða 5. nóvember. 2026.
Eistland – Ísland, 7. eða 8. nóvember. 2026.
Serbía – Ísland, 10. eða 11. mars 2027.
Ísland – Serbía, 13. eða 14. mars 2027.
Úkraína – Ísland, 5. eða 6. maí 2027.
Ísland – Eistland, 9. maí 2027.

Riðaskiptingin:
1. riðill: Króatía, Holland, Litáen, Finnland.
2. riðill: Noregur, Austurríki, Georgía, Tyrkland.
3. riðill: ÍSLAND, Serbía, Úkraína, Eistland.
4. riðill: Ungverjaland, Færeyjar, Svartfjallaland, Kósovó.
5. riðill: Slóvenía, Tékkland, Bosnía, Ísrael.
6. riðill: Frakkland, Pólland, Rúmenía, Lettland.
7. riðill: Þýskaland, Ítalía, Belgía, Slóvakía.
8. riðill: Svíþjóð, Norður-Makedónía, Grikkland, Lúxemborg.

Leikdagar undankeppninnar:
1. umferð: 4. og 5. nóvember 2026.
2. umferð: 7. og 8. nóvember 2026.
3. umferð: 10. og 11. mars 2027.
4. umferð: 13. og 14. mars 2027.
5. umferð: 5. og 6. maí 2027.
6. umferð: 9. maí 2027 – allir leikir hefjast klukkan 16.

Lokakeppni EM fer fram í Portúgal, Spáni og Sviss frá 13. til 30. janúar 2028. Miðasala er ekki hafin.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -