Vegna veðurs og ófærðar hefur fyrstu viðureign Gróttu og Harðar í undanúrslitum umspils Olísdeildar karla sem fram átti að fara í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi í kvöld verið seinkað fram á sunnudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSÍ. Áætlað er að leikurinn hefjist klukkan 16.30 á sunnudag.
Næsta leik seinkað
Vegna þessarar breytingar hefur annarri viðureign liðanna verið færð frá þriðjudeginum 31. mars yfir til 1. apríl. Stefnt er á að hefja leik á Torfnesi klukkan 19.
Í tilkynningu HSÍ segir að útséð sé að vegna veðurs komist Harðarliðið suður í dag eða á morgun. Þess vegna er breytingin óhjákvæmileg.
Stjarnan og Fjölnir mætast í fyrsta sinn í kvöld í rimmu undanúrslita umspilsins í Hekluhöllinni í Garðabæ klukkan 19.30.



